Vöruflokkur: Cobi Kubbasett®

COBI er pólskt fyrirtæki sem var stofnað árið 1987, þannig að það hefur starfað í tæp 40 ár. Fyrirtækið byrjaði á púsluspilum og borðspilum en hóf framleiðslu á byggingarkubbum árið 1992 og framleiðir kubbana enn í eigin verksmiðju í Póllandi. COBI er í dag stærsti framleiðandi byggingarkubba í Mið- og Austur-Evrópu og er sérstaklega þekkt fyrir söguleg farartæki, flugvélar, skip og opinber leyfissett frá meðal annars Boeing, Lockheed Martin, Maserati og Jeep. COBI kubbarnir passa saman við LEGO kubba.