Refund policy
Upplýsingar
Undraveröld er leikfangaverslun stofnuð 2023.
Vörurnar okkar er einungis hægt að versla á netinu.
Undraveröld er í eigu Grænir bræður ehf, Kt. 5103191090
Greiðsla
Við bjóðum upp á greiðslu með kredit- og debetkorti. Kortagreiðslur fara í gegnum Teya.
Heimsending með Dropp á höfuðborgarsvæðinu - 1290 kr
Hægt að fá pantanir sendar með Dropp og er afhendingartími alla jafna 2-3 virkir dagar.
Sending á næsta afhendingastað Dropp - 790 kr á höfuðborgarsvæðinu en 990 kr á landsbyggðinni.
Ef þú velur að sækja pöntun þína á næsta afhendingarstað Dropp þá getur þú sótt pöntun þína á þeim tíma sem þér hentar best. Þú velur þann afhendingastað sem hentar þér t.d. á afgreiðslustöð N1 á leið úr vinnu eða álíka. Afhendingatími er alla jafna 2-3 virkir dagar á afhendingastaði Dropp
Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að senda okkur línu á undra
Verð
24% virðisaukaskattur er innifalinn í öllu vöruverði
Vöruskil
Skilafrestur er 30 dagar frá kaupum. Vöru fæst aðeins skipt eða skilað ef hún er óopnuð í upprunalegum umbúðum. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er komin í hendur viðtakanda.
Tilkynna skal um vöruskil eða skipti með því að senda email á undraverold.is Við munum afgreiða allar slíkar beiðnir fljótt og svörum eins fljótt og auðið er.
Einnig er hægt að skipta vöru með því að senda hana í pósti og fá þá senda aðra vöru í skiptum senda með Dropp.
Framlengdur skilafrestur Jólagjafa. Vörur sem keyptar eru frá og með 15.september 2024 er hægt að skipta í aðra vöru til 31.janúar 2025
Aðeins er endurgreitt á þann aðila sem greiddi fyrir vöruna upphaflega, sá sem fær vöru að gjöf getur því aðeins krafist vöruskipta en ekki endurgreiðslu. Gjöfum er hægt að skipta í aðra vöru innan 30 daga. Endurgreiðsla er gerð í sama formi og greitt var fyrir vöruna. Endurgreiðsla er upp að sömu upphæð og varan var keypt á.
Heimsendingargjald fæst ekki endurgreitt og greiðir viðskiptavinur sendingargjald á endursendingu ef það á við. Athugið að kaupandi ber ábyrgð á sendingunni þar til hún hefur borist Kósýgöllum.