Vöruflokkur: ROLIFE® & ROKR® Þrívíddar viðarpúsl

Rolife er vinsælt vörumerki frá Robotime sem hefur á skömmum tíma slegið í gegn um allan heim með fallegum þrívíddarpúslum, bókahornum, smáhýsum og DIY-settum.

Hjá Undraveröld finnur þú fjölbreytt úrval af Rolife og ROKR þrívíddarpúslum, bókahornum (Book Nooks), smáhýsum og DIY-samsetningarsettum fyrir börn, unglinga og fullorðna. Þessi vinsælu vörumerki hafa slegið í gegn um allan heim með fallegri hönnun, nákvæmum smáatriðum og skemmtilegum verkefnum sem þú setur saman sjálfur.

Ertu að leita að frumlegri gjöf fyrir einhvern sem á allt? Rolife og ROKR eru frábærar afmælisgjafir, jólagjafir og fermingargjafir fyrir þá sem elska föndur, smíði, púsl, bækur og skapandi áhugamál. Úrvalið inniheldur meðal annars einfaldari þrívíddarpúsl fyrir börn frá 8 ára aldri og flóknari samsetningarsett fyrir unglinga frá 14 ára aldri og fullorðna.

Í úrvalinu finnur þú meðal annars bókahorn með ljósum, dúkkuhús, smáhýsi, vélræn viðarpúsl, kúlubrautir, spiladósir, blóm úr viði, bíla, lestir og önnur smíðasett. Í flestum settum fylgir allt sem þarf til samsetningar og mörg verkefnin smellast saman án líms. Fullbúin módel verða jafnframt að fallegum skrautmunum fyrir heimilið.