Smíði fjarstýrðra bíla
Smíði fjarstýrðra bíla
Afhendingatími 0-2 dagar
Afhendingatími 0-2 dagar
Pantanir eru sendar með Dropp og er sendingatími 0-2 virkir dagar.
Ef pantað er fyrir kl 11:30 á virkum dögum þá berst sendingin samdægurs á höfuðborgarsvæðinu og Suðvesturhorninu.
Með þetta stórkostlega sett og verkfæri að vopni geturðu smíðað þína eigin fjarstýrðu bíla. Brunaðu hring eftir hring í stofunni í tíu mismunandi útgáfum af þínum eigin kappakstursbíl!
Skiptu út pörtum og endursmíðaðu bílinn fyrir þær áskoranir sem þig langar að takast á við. Stundum getur verið betra að vera á Buggy bíl til að sigrast á erfiðu landslagi á meðan kappakstursbíll kemst hraðar yfir slétt parket.
Stilltu hraðann beint í gírkassanum sjálfum sem þú getur opnað og fiktað í. Í stýrihúsinu eru fjórir gírar sem þú getur stillt til að fá hraða eða kraft. Allt þetta hjálpar þér að fínstilla hegðun og akstureiginleika bílanna sem þú smíðar. Hvort sem þig langar til að smíða kappaksturbíl, toffæru buggy, pallbíl, jeppa, kvartmílubíl, smá bíl, trukk, ofurbíl, körtu eða „Hot Rod“ þá fylgir með haugur af pörtum og límmiðum til að láta bílin þinn líta vel út!
Lærðu frá grunni hvað það er raunverulega sem lætur bílana virka og hvernig, hvort sem það eru dekkin, skiptingar ,vélin ,öxlar, grindin, rafkerfið, bremsur og demparar. Lærðu eðlisfræðina bakvið hraða, tog, orku og loftflæði.
80 blaðsíðna leiðbeiningabæklingur sem fer skref fyrir skref hvernig byggja á bílana fylgir settinu.
Aldur: 8+
Ath: leiðarvísir á ensku
- Góð þjónusta
- 30 daga skilafrestur
- Stuttur afhendingatími